19 apríl 2023Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar
Mál nr. 78/2023 - Úrskurður
Sérstakt framlag. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að hafa milligöngu um sérstakt framlag vegna tannréttinga sonar kæranda. Með vísan til þágildandi 1. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar er það mat úrskurðarnefndar að ekki sé heimilt að synja barnsmóður kæranda um milligöngu sérstaks framlags þar sem fyrir liggur löggild ákvörðun sem kveður á um greiðsluskyldu hans.