27 ágúst 2013Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir
Mál nr. 164/2012.
<p>Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar sem hún hafði hafnað atvinnutilboði með vísan til 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. mgr. 9. gr. sömu laga, var felld úr gildi. Taldi nefndin að málið hefði ekki verið nægilega rannsakað af hálfu Vinnumálastofnunar sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.</p>