16 nóvember 2020Úrskurðarnefnd um upplýsingamál
944/2020. Úrskurður frá 30. október 2020
Deilt var um synjun Herjólfs ohf. á beiðni kæranda um samantekt með auglýsingakostnaði félagsins, sundurliðuðum eftir fjölmiðlum á tilteknu tímabili. Eins og atvikum málsins var háttað féllst úrskurðarnefnd um upplýsingamál á þá staðhæfingu Herjólfs að umbeðin gögn væru ekki fyrirliggjandi, sbr. 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, og að félaginu væri ekki skylt að taka gögnin saman.…