27 febrúar 2014Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir
Mál nr. 17/2013
<p>Kærandi fékk ofgreiddar atvinnuleysisbætur vegna tekna í hlutastarfi. Hann greiddi eftirstöðvar kröfunnar en krafðist þess síðar að fá umrædda kröfu endurgreidda þar sem stjórn Vinnumálastofnunar ákvað að afskrifa útistandandi kröfur frá árunum 2009‒2010 sem mynduðust vegna hlutastarfa einstaklinga með heimild Ríkisendurskoðunar í desember 2012. Hin kærða ákvörðun var staðfest.</p>