20 febrúar 2025Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir
Mál nr. 620/2024-Úrskurður
Bótatímabil. Tekjutengdar bætur. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um eftirstöðvar bótatímabils. Kærandi hafði starfað í skemmri tíma en 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hún fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur og hafði því ekki unnið sér inn rétt til nýs bótatímabils. Einnig staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að kærandi ætti ekki rétt á tekjutengdum atvinnuleysisbótum.