20 desember 2018Úrskurðarnefnd um upplýsingamál
771/2018. Úrskurður frá 7. desember 2018
Kærð var afgreiðslutöf Landsvirkjunar á beiðni kæranda um upplýsingar, m.a. í tengslum við samningsgerð við Íslenskar orkurannsóknir. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að Landsvirkjun er meðal þeirra lögaðila sem eru undanþegnir upplýsingalögum á grundvelli 2. mgr. 3. gr. laganna og auglýsingu ráðherra nr. 600/2013. Var kæru því vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.