17 febrúar 2015Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir
Mál nr. 6/2014
Það var ekki talinn fullnægjandi birtingarháttur hjá
Vinnumálastofnun að birta kæranda greiðsluseðil eingöngu á ,,mínum síðum“, þar
sem kærandi gat ekki vitað að hann þyrfti áfram að kynna sér þá slóð. Málið var
því tekið til efnislegrar úrlausnar þó svo að kæran hafi borist að liðnum
kærufresti.