21 ágúst 2025Úrskurðarnefnd um upplýsingamál
1294/2025. Úrskurður frá 21. ágúst 2025
Deilt var um rétt til aðgangs að færslu úr dagbók lögreglu í vörslu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan taldi að gagnið félli utan gildissviðs upplýsingalaga, nr. 140/2012, þar sem það tilheyrði sakamáli. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki ástæðu til að draga í efa að svo væri. Kærunni var því vísað frá úrskurðarnefndinni.