22 apríl 2020Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar
Mál nr. 491/2019 - Úrskurður
Meðlag
Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um upphafstíma milligöngu um meðlagsgreiðslur til kæranda. Þeim hluta kæru er varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að stöðva milligöngu meðlagsgreiðslna til kæranda er vísað frá nefndinni þar sem að meira en tvö ár liðu frá þeirri ákvörðun þar til kæra barst úrskurðarnefndinni, sbr. 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.