13 nóvember 2012Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir
Mál nr. 165/2011
<p>Ekki var fallist á að skýringar kæranda réttlættu höfnun hennar á atvinnutilboði með vísan til 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. mgr. 9. gr. sömu laga, enda hafði kærandi hvorki gert grein fyrir skertri vinnufærni sinni í umsókn um atvinnuleysisbætur né lagt fram nein gögn þess efnis. Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar var því staðfest.</p>