23 júní 2026Úrskurðarnefnd um upplýsingamál
1370/2026. Úrskurður frá 23. júní 2026
Deilt var um ákvörðun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. að hafna beiðni um aðgang að drögum að fjárhagsáætlun félagsins fyrir árið 2026. Synjunin byggðist á því að um vinnugagn væri að ræða, sbr. 5. tölul. 6. gr. og 1. mgr. 8. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi skjalið uppfylla skilyrði þess að vera vinnugagn, og staðfesti ákvörðun félagsins.