21 júní 2023Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar
Mál nr. 120/2023-Úrskurður
Framlenging lífeyrisgreiðslna. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja umsókn um framlengingu lífeyrisgreiðslna þrátt fyrir dvöl á hjúkrunarheimili. Kærandi uppfyllti ekki skilyrði framlengingar lífeyrisgreiðslna þar sem að hún var talin fær um að greiða helminginn af afborgunum og rekstrarkostnaði vegna íbúðarinnar.