13 desember 2019Úrskurðarnefnd um upplýsingamál
858/2019. Úrskurður frá 13. desember 2019
Kærð var afgreiðsla Náttúrufræðistofnunar Íslands á beiðni um gögn varðandi friðlýsingartillögu. Stofnunin kvaðst þegar hafa afhent kæranda öll gögn málsins að undanskildum vinnugögnum, sbr. 5. tölul. 6. gr. og 8. gr. upplýsingalaga. Að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál var vafalaust að um vinnugögn væri ræða og var ákvörðun Náttúrufræðistofnunar því staðfest.