26 ágúst 2020Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar
Mál nr. 164/2020
Heimilisuppbót
Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að stöðva greiðslu heimilisuppbótar afturvirkt og krefjast endurgreiðslu ofgreiddrar heimilisuppbótar með 15% álagi. Skilyrði um að vera einhleypur samkvæmt 8. gr. laga nr. 99/2007 var ekki lengur uppfyllt.