24 febrúar 2026Stjórnsýslukærur - úrskurðir
Úrskurður fjármála- og efnahagsráðuneytis nr. 1/2026 vegna ákvörðunar Skattsins um ráðstöfun greiðslna inn á skattskuldir fyrrverandi maka á tímabilinu 28. október til 7. nóvember 2024
Ráðuneytinu hefur borist stjórnsýslukæra […], dags. 14. apríl 2025. Þess er aðallega krafist að ákvörðun Skattsins um ráðstöfun greiðslna inn á skattskuld maka á grundvelli sjálfskuldarábyrgðar, skv. 116. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, verði felld úr gildi og ofgreiddar fjárhæðir endurgreiddar. Til vara er þess krafist að ráðstöfun Skattsins verði breytt.…