24 október 2025Úrskurðarnefnd um upplýsingamál
1308/2025. Úrskurður frá 24. október 2025
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál barst beiðni um endurupptöku máls sem lauk með úrskurði nefndarinnar nr. 1292/2025 frá 21. ágúst 2025. Nefndin taldi að skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, fyrir endurupptöku máls væru ekki uppfyllt. Þá væru ekki heldur skilyrði til endurupptöku málsins á ólögfestum grundvelli. Beiðni um endurupptöku málsins var því hafnað.