26 nóvember 2014Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál
Mál nr. 58/2014
Fjárhagsaðstoð. Styrkur vegna sérstakra erfiðleika. Kærð var synjun Reykjavíkurborgar á umsókn um styrk á grundvelli 24. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð. Þar sem kærandi hafði ekki notið fjárhagsaðstoðar sér til framfærslu undanfarna sex mánuði eða lengur, sbr. a-lið 24. gr. reglnanna, var hin kærða ákvörðun staðfest.