09 mars 2021Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema
8/2020 A gegn Háskóla Íslands
Mál þetta hófst með kæru A, dags. 30. nóvember 2020 (hér eftir „kærandi“), þar sem kærð er ákvörðun kærunefndar í málefnum nemenda við Háskóla Íslands í málinu nr. 2020/3 og sú krafa gerð að úrskurðurinn verði endurskoðaður og að ályktun hans um að „kennsluáætlun sé óheppilega orðuð“ sé fylgt eftir og viðeigandi ráðstafanir gerðar.