21 júní 2013Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir
Mál nr. 112/2012
<br>
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar sem hann hefði verið staðinn að vinnu samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur   sbr. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, felld úr gildi. Taldi nefndin að málið hefði ekki verið nægilega rannsakað af hálfu Vinnumálastofnunar sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.