30 apríl 2024Úrskurðarnefnd um upplýsingamál1184/2024. Úrskurður frá 30. apríl 2024Óskað var upplýsinga hjá Hagstofu Íslands um töflu um fjölda foreldra sem andast. Kærandi taldi svör stofnunarinnar ófullnægjandi. Við meðferð málsins hjá úrskurðarnefnd um upplýsingamál kom í ljós að engin gögn lægju fyrir hjá stofnuninni sem heyrðu undir beiðni kæranda. Þar sem ekki lá fyrir kæranleg ákvörðun til úrskurðarnefndarinnar var ákvörðun Hagstofu Íslands staðfest.
30 apríl 2024Úrskurðarnefnd um upplýsingamál1183/2024. Úrskurður frá 30. apríl 2024Ríkislögreglustjóri synjaði beiðni kæranda um aðgang að hljóðupptöku af símtali milli einstaklings og fjarskiptamiðstöðvar ríkislögreglustjóra. Synjunin byggðist á því að upptakan innihéldi upplýsingar sem vörðuðu einkamálefni annarra og að hagsmunir þeirra af því að upptakan færi leynt vægju þyngra en hagsmunir kæranda af að fá aðgang að henni.…
30 apríl 2024Úrskurðarnefnd um upplýsingamál1182/2024. Úrskurður frá 30. apríl 2024Kærandi óskaði eftir gögnum um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands í kostnaði við tannréttingar hans. Sjúkratryggingar Íslands fullyrtu að öll gögn málsins hjá stofnuninni hefðu verið afhent kæranda.…
30 apríl 2024Úrskurðarnefnd um upplýsingamál1181/2024. Úrskurður frá 30. apríl 2024Óskað var eftir gögnum um yfirtöku Orku náttúrunnar á rekstri hleðslustöðva hjá Vestmannaeyjabæ. Sveitarfélagið kvaðst ekki hafa heimild til að afhenda gögnin því Orka náttúrunnar legðist gegn afhendingu þeirra. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók til skoðunar hvort 4. tölul. 10. gr. upplýsingalaga, nr.…
30 apríl 2024Úrskurðarnefnd velferðarmála - AlmannatryggingarMál nr. 138/2024-ÚrskurðurKærufrestur liðinn. Kæru vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
30 apríl 2024Kærunefnd útlendingamálaNr. 451/2024 Úrskurður Stjórnsýslukæru sem barst eftir lok kærufrests, sbr. 7. gr. laga um útlendinga, er vísað frá, sbr. 28. gr. stjórnsýslulaga.
30 apríl 2024Kærunefnd útlendingamálaNr. 452/2024 Úrskurður Beiðni kæranda um endurupptöku máls fyrir kærunefnd á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er hafnað.
30 apríl 2024Úrskurðarnefnd velferðarmála - AlmannatryggingarMál nr. 104/2024-ÚrskurðurKæru vísað frá úrskurðarnefndinni.
30 apríl 2024Kærunefnd útlendingamálaNr. 446/2024 Úrskurður Endurtekin umsókn kæranda er tekin til meðferðar.
30 apríl 2024Kærunefnd útlendingamálaNr. 420/2024 Úrskurður Endurtekin umsókn kæranda er tekin til meðferðar.
30 apríl 2024Úrskurðarnefnd velferðarmála - AlmannatryggingarMál nr. 53/2024-ÚrskurðurEndurhæfingarlífeyrir. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja umsókn kæranda um endurhæfingarlífeyri. Kærandi uppfyllti ekki skilyrði um 12 mánaða búsetu á Íslandi. Úrskurðarnefndin getur ekki virt að vettugi skýr og afdráttarlaus fyrirmæli laga þótt þau kunni að vera í ósamræmi við skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum.