18 desember 2012Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir
Mál nr. 2/2012
<p>Ekki var fallist á að skýringar kæranda réttlættu höfnun hennar á atvinnutilboði með vísan til 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. mgr. 9. gr. sömu laga. Kærandi lagið fyrst fram læknisvottorð eftir að hún hafnaði atvinnutilboðinu og tók ekki fram í umsókn um atvinnuleysisbætur að hún stríddi við skerta vinnufærni. Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar er því staðfest.</p>