29 nóvember 2018Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018
Kæra vegna kröfu Sjúkratrygginga Íslands um endurgreiðslu
Kærð var ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að krefja kæranda um endurgreiðslu vegna ofnotkunar á gjaldliðnum þung meðferð í starfi sem sjúkraþjálfari, ásamt því að veita honum viðvörun vegna málsins. Ráðuneytið felldi ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands úr gildi og vísaði málinu aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.