17 maí 2023Úrskurðarnefnd um upplýsingamál
1142/2023. Úrskurður frá 28. apríl 2023
Deilt var um rétt kæranda, blaðamanns, til aðgangs að ákvörðunum nefndar um eftirlit með lögreglu á tilteknu tímabili. Synjunin byggði á því að afgreiðsla beiðninnar tæki svo mikinn tíma og krefðist svo mikillar vinnu að ekki væri af þeim sökum fært að verða við henni, sbr. 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga.…