22 ágúst 2023Úrskurðarnefnd um upplýsingamál
1147/2023. Úrskurður frá 26. júlí 2023
Kærð var synjun dómsmálaráðuneytisins á beiðni A, fréttamanns, um aðgang að minnisblaði ráðherra sem lagt var fyrir á ríkisstjórnarfundi, um sjónarmið Almannavarna um samgöngumál á Austfjörðum. Úrskurðarnefndin taldi ljóst að minnisblaðið til ríkisstjórnar Íslands hefði verið lagt fyrir ráðherrafund og því undanþegin upplýsingarétti almennings með vísan til 1. tölul. 6. gr. upplýsingalaga.…