01 júní 2023Kærunefnd útlendingamála
Nr. 337/2023 Úrskurður
Endurtekin umsókn kæranda er tekin til meðferðar. Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsóknir kæranda og barns hennar um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda þær til Ítalíu eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda og barns hennar til efnismeðferðar.