19 ágúst 2020Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar
Mál nr. 129/2020 - Úrskurður
Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um synjun bóta úr sjúklingatryggingu. Úrskurðarnefnd velferðarmála taldi að rannsókn og meðferð hafi verið hagað eins vel og unnt hafi verið og í samræmi við þekkingu og reynslu á viðkomandi sviði. Þá taldi úrskurðarnefndin að tjón kæranda væri vel þekktur fylgikvilli þess áverka sem kærandi var fyrir.