15 desember 2022Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir
Mál nr. 482/2022-Úrskurður
Viðurlög. Felld úr gildi ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði með vísan til þess að hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði. Kærandi hafði ekki verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur þegar hann mætti ekki á fund hjá Vinnumálastofnun.