16 júní 2025Úrskurðarnefnd um upplýsingamál
1283/2025. Úrskurður frá 16. júní 2025
Deilt var um rétt til aðgangs að upptökum í vörslu embættis ríkislögreglustjóra af bruna sem varð í húsnæði í eigu kæranda. Kærandi taldi að réttur hans til aðgangs að gögnunum færi samkvæmt 14. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og að hann ætti rétt á að fá afrit af þeim. Ríkislögreglustjóri taldi að gagnið félli utan gildissviðs laganna þar sem það tilheyrði sakamáli, sbr. 1. mgr. 4. gr.…