11 júní 2019Úrskurðarnefnd um upplýsingamál
790/2019. Úrskurður frá 31. maí 2019
Blaðamaður kærði afgreiðslu Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf. á beiðni kæranda um gögn vegna kaupa félagsins á lögfræðiþjónustu á nánar tilgreindu tímabili. Á þeim tíma sem kæran barst var félagið undanþegið gildissviði upplýsingalaga, sbr. 3. mgr. 2. gr. laganna auk auglýsingar forsætisráðherra, nr. 1107/2015, og var málinu því vísað frá.