08 september 2020Úrskurðarnefnd um upplýsingamál
925/2020. Úrskurður frá 28. ágúst 2020
Í málinu var kærð afgreiðsla Þjóðskrár Íslands á beiðni um aðgang að hljóðupptöku af símtali á milli Þjóðskrár og borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins sem varðaði mál kæranda. Fram kom að símtalið var ekki tekið upp, þannig lá ekki fyrir synjun um aðgang að fyrirliggjandi gögnum, sbr. 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga, og var málinu vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.