09 febrúar 2023Kærunefnd útlendingamála
Nr. 83/2023 Úrskurður
Beiðni kæranda um endurupptöku er samþykkt. Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsóknir kæranda og barns hennar um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda þær til Ítalíu eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir kæranda og barns hennar til efnismeðferðar.