27 febrúar 2025Stjórnsýslukærur - úrskurðir
Úrskurður fjármála- og efnahagsráðuneytis vegna úrskurðar ríkisskattstjóra um beitingu dráttarvaxta á virðisaukaskatt vegna leiðréttingaskýrslna virðisaukaskatts fyrir tilgreind uppgjörstímabil
Hinn 4. nóvember 2024 barst fjármála- og efnahagsráðuneytinu („ráðuneytið“) stjórnsýslukæra […] („kærandi“ ), dags. 31. október 2024. Er þess krafist að úrskurður ríkisskattstjóra, dags. 28. ágúst 2024, vegna beitingu dráttarvaxta á virðisaukaskatt vegna leiðréttingaskýrslna virðisaukaskatts fyrir tilgreind uppgjörstímabil áranna 2021, 2022 og 2023 verði felldur úr gildi.