16 nóvember 2021Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis
Úrskurður nr. 15/2021
Ákvörðun embættis landlæknis, um að synja umsókn kæranda um sérfræðileyfi í heimilislækningum, var staðfest. Að mati ráðuneytisins uppfyllti kærandi ekki skilyrði reglugerðar nr. 1222/2012 um tiltekinn starfstíma á heilsugæslustöð. Þá lá ekki fyrir staðfesting frá læknadeild Háskóla Íslands á því að kærandi hefði uppfyllt kröfur um fræðilegt nám í greininni.