19 mars 2026Stjórnsýslukærur - úrskurðir
Úrskurður fjármála- og efnahagsráðuneytisins nr. 4/2026 vegna ákvörðunar Skattsins að hafna beiðni um niðurfellingu dráttarvaxta á virðisaukaskatt vegna leiðréttingarskýrslna
Ráðuneytinu barst kæra í málinu þann 6. október 2025 en kærandi er A. Kærð er ákvörðun Skattsins, dags. 21. júlí 2025, um að hafna beiðni kæranda um niðurfellingu dráttarvaxta á virðisaukaskatt vegna leiðréttingarskýrslna fyrir uppgjörstímabilin júlí-ágúst 2023 til og með nóvember-desember 2023 vegna skráningarnúmers X.