18 janúar 2023Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar
Mál nr. 536/2022-Úrskurður
Umönnunargreiðslur. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um stöðvun umönnunargreiðslna til kæranda frá 1. september 2022. Skilyrði fyrir greiðslum var ekki uppfyllt þar sem sonur kæranda var með fasta búsetu hjá föður frá því í ágúst 2022, þ.e. lögheimili í skilningi 1. mgr. 2. gr. laga um lögheimili og aðsetur.