24 mars 2023Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis
Úrskurður nr. 6/2023
Í málinu var kærð ákvörðun embættis landlæknis um að áminna lækni vegna brots á starfsskyldum sínum við útgáfu læknisvottorðs. Var það mat ráðuneytisins að vægara úrræði, líkt og tilmæli, hefði ekki náð settu markmiði og því hafi ákvörðunin ekki brotið gegn meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Var ákvörðun embættis landlæknis því staðfest.