26 febrúar 2015Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir
Mál nr. 49/2014
Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og
vinnumarkaðsaðgerða var það ófullnægjandi birtingarháttur að birta kæranda
greiðsluseðil eingöngu á ,,mínum síðum“ þar sem hann gat ekki vitað að hann
þyrfti að kynna sér þá slóð. Hinni kærðu ákvörðun var vísað frá úrskurðarnefnd
atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða og til nýrrar meðferðar
Vinnumálastofnunar.