28 maí 2026Stjórnsýslukærur - úrskurðir
Úrskurður fjármála- og efnahagsráðuneytisins nr. 9/2026 vegna ákvörðunar ríkisskattstjóra að hafna beiðni kæranda um greiðslufrest í tolli
Hinn 22. apríl 2026 barst fjármála- og efnahagsráðuneytinu (hér eftir „ráðuneytið“) stjórnsýslukæra […] fyrir A ehf. (hér eftir „kærandi “). Kærð er ákvörðun ríkisskattstjóra, dags. 26. febrúar 2026, um að hafna umsókn kæranda um greiðslufrest í tolli, sbr. 1. og 2. mgr. 24. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988 („hér eftir „vskl.“) og 3. mgr. 122. gr. tollalaga nr.…