27 nóvember 2019Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar
Mál nr. 373/2019 - Úrskurður
Greiðsluþátttaka í heilbrigðisþjónustu. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja kæranda um greiðsluþátttöku vegna læknismeðferðar erlendis. Úrskurðarnefnd velferðarmála taldi að skilyrði 1. málsl. 1. mgr. 23. gr. laga um sjúkratryggingar, um að ekki sé unnt að veita nauðsynlega aðstoð hér á landi, væru ekki uppfyllt í tilviki kæranda.