20 apríl 2009Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir
Mál nr. 33/2008
Kærandi var sjálfstætt starfandi iðnaðarmaður. Sú fjárhæð sem hann greiddi staðgreiðslu og tryggingagjald af á ávinnslutímabilinu náði ekki 25% af árslaunum sjálfstætt starfandi iðnaðarmanns. Hann átti því ekki rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta og var hin kærða ákvörðun staðfest.