18 mars 2009Úrskurðir mennta- og barnamálaráðuneytisins
Kæra vegna brottvikningar úr skóla 2009
Menntamálaráðuneytinu barst þann 27. desember 2008, kæra foreldra f.h. sonar þeirra, 11 ára nemanda við grunnsskóla. Kærð er ákvörðun skólastjóra að vísa drengnum úr skóla og telja kærendur að við málsmeðferð og töku þeirrar ákvörðunar hafi ákvæða stjórnsýslulaga ekki verið gætt.