26 maí 2011Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir
Mál nr. 167/2010
Vinnumálastofnun taldi kæranda hafa hafnað atvinnutilboði. Úrskurðarnefndin féllst ekki á að kærandi hefði með sannanlegum hætti vikið sér undan því að mæta í atvinnuviðtal og voru atvik málsins því ekki talin falla undir síðari málslið 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Hin kærða ákvörðun var felld úr gildi.