08 mars 2023Úrskurðarnefnd um upplýsingamál
1128/2023. Úrskurður frá 27. febrúar 2023
Landsnet hf. synjaði kæranda um aðgang að gögnum sem innihéldu staðsetningar loftlínumastra fyrirtækisins á miðhálendi Íslands. Synjunin var á því byggð að gögnin teldust ekki fyrirliggjandi í skilningi upplýsingalaga, sbr. 1. mgr. 5. gr. laganna, auk þess sem upplýsingarnar vörðuðu öryggi ríkisins, sbr. 1. tölul. 10. gr. sömu laga.…