18 janúar 2020Kærunefnd útboðsmála
Mál nr. 26/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 11. október 2019 kærði Öryggismiðstöð Íslands hf. örútboð Framkvæmdasýslu ríkisins á búnaði fyrir hjúkrunarheimili á Sléttuvegi í Reykjavík, sem efnt var til á grundvelli rammasamnings nr. 20674. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila frá 10. október 2019 um að hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði.…