15 júlí 2019Úrskurðarnefnd um upplýsingamál
808/2019. Úrskurður frá 3. júlí 2019
Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að afritum af lánasamningum og skuldaskilmálum Íslandspósts ohf. til dótturfélags síns, ePósts ehf. Af hálfu Íslandspósts kom fram að ePóstur væri undanþeginn gildissviði upplýsingalaga, og því þyrfti ekki að afhenda upplýsingar um lánveitingar og önnur fjárhagsmálefni sem vörðuðu undanþegið félag.…