14 janúar 2015Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál
Mál nr. 66/2014
Húsaleigubætur. Lækkun húsaleigubóta. Þar sem barn kæranda var ekki lengur með lögheimili hjá henni átti hún ekki rétt á að húsaleigubætur væru ákvarðaðar og reiknaðar út miðað við að hún væri með barn á framfæri, sbr. 5. gr. laga nr. 138/1997 um húsaleigubætur. Hin kærða ákvörðun staðfest.