30 ágúst 2012Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál
Mál nr. 6/2012
<p>Kærandi telur að við endurútreikning lána hjá Íbúðalánasjóði eigi einnig að taka tillit til láns hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins sem tekið hafi verið í tengslum við kaup kæranda á íbúð hennar, en umrætt lán er með veði í fasteign sem er ekki í eigu kæranda. Heimild til niðurfærslu tekur eingöngu til áhvílandi veðkrafna Íbúðalánasjóðs. Staðfest.</p>