20 nóvember 2013Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál
Mál nr. 14/2013.
<p>Yfirtaka láns. Leita bar samþykkis Íbúðalánasjóðs um yfirtöku kæranda á öllum lánum seljenda fasteignarinnar sem ætlað var að hvíla áfram á eigninni, sbr. 16. gr. reglugerðar nr. 522/2004. Kærandi óskaði einungis eftir yfirtöku hluta þeirra lána. Hin kærða ákvörðun staðfest.</p>