29 febrúar 2024Úrskurðarnefnd um upplýsingamál
1176/2024. Úrskurður frá 29. febrúar 2024
Kærð var töf á afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar á beiðni um upplýsingar um íbúafjölda. Af hálfu Vestmannaeyjabæjar kom fram að erindi kæranda hefði ekki borist sveitarfélaginu. Úrskurðarnefndin taldi af þeim sökum að ekki gæti verið um drátt á afgreiðslu beiðninnar að ræða, og var kærunni vísað frá nefndinni.