01 október 2009Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir
Mál nr. 23/2009
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur 20. október 2008 og 24. nóvember 2008. Tekin var afstaða til fyrri umsóknar hans á þeim grundvelli að hann væri launamaður en síðari umsóknin var afgreidd á þeim grundvelli að hann væri sjálfstætt starfandi einstaklingur. Vinnumálastofnun hafnaði báðum umsóknum kæranda og úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða staðfesti þær niðurstöður.